Leita í fréttum mbl.is

Hvað er þetta með auglýsingarnar hjá Frjálslynda flokknum

Ég held að Frjálslyndi flokkurinn ætti nú að fá sér yfirlesara á auglýsingarnar hjá sér.  Það er svakalegt að lesa þær.

Í dag er birt auglýsing frá þeim í morgunblaðinu og fréttablaðinu og hefur villupúkinn ekki verið notaður við yfirlesturinn á þeim - þar stendur FRJÁLSYNDI FLOKKURINN    Þetta er önnur auglýsingin á skömmum tíma þar sem þeir gera svona klaufarlega villu í texta.

Jæja, svona er þetta - ég hló hátt!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

(Ég held að Frjálslyndi flokkurinn ætti nú að fá sér yfirlesara á auglýsingarnar hjá sér.  Það er svakalegt að lesa þær.

Í dag er birt auglýsing frá þeim í morgunblaðinu og fréttablaðinu og hefur villupúkinn ekki verið notaður við yfirlesturinn á þeim - þar stendur FRJÁLSYNDI FLOKKURINN    Þetta er önnur auglýsingin á skömmum tíma þar sem þeir gera svona klaufarlega villu í texta.

Jæja, svona er þetta - ég hló hátt!)

Sá hlær best sem síðast hlær Ingi minn.  Eða varstu ef til vill að hugsa um buxnaklaufina þína ?

Annars heitir þetta á góðu máli að kasta grjóti úr glerhúsi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.4.2007 kl. 13:40

2 identicon

Jahérna hér. Nú þykir mér vera kastað stórgrýti úr næfurþunnu glerhýsi. Mér datt í hug málshátturinn „hátt hreykir heimskur sér“ þegar ég las pistil bæjarfulltrúans. Stafsetningarvillurnar eru í það minnsta sex að tölu, fyrir utan málvillurnar. Stundum er betra að hugsa fyrst, hafi menn græjur til þess.

Njörður (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 14:01

3 Smámynd: Guðný Jóhannesdóttir

Villa pilla þetta er nú smá húmor ekki satt. Glerhús eða ekki það má ekki tapa húmornum þó í baráttu sé komið.

Guðný Jóhannesdóttir, 16.4.2007 kl. 22:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband