Leita í fréttum mbl.is

Fylgi Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi

Það er óhætt að segja að fylgi sjálfstæðisflokksins, sem og annarra flokka, hafi sveiflast mjög mikið að undanförnu og á því er dagamunur á eins og sannaðist nú um helgina.

Á föstudaginn kynnti Capacent könnun sem þeir gerðu 17. - 23.apríl, þar kom fram að sjálfstæðisflokkurinn var með 29,9% fylgi í norðvesturkjördæmi.  Á laugardaginn kynnti síðan RÚV könnun í kjördæmisþætti sínum um norðvesturkjördæmi og þar kom fram að sjálfstæðisflokkurinn var með 33,2% fylgi.

Nú ef maður skoðar hvað stendur á bakvið þessar tölur þá kemur ýmislegt í ljós.  Á bakvið könnun Capacent í kjördæminu kom fram að í úrtakinu voru aðeins 119 svarendur sem standa þar á bakvið.  Hinsvegar í könnun RÚV eru það 800 manns sem eru í úrtaki hennar og 64,5% svöruðu.  Því má segja að könnun RÚV gefi mun betri mynd af fylgi flokka í kjördæminu.

Sjálfstæðisflokkurinn er að mælast með nokkuð mikið fylgi í kjördæminu og mun hann halda sínum þremur mönnum ef þær tölur koma upp úr kjörkössunum 12.maí.

Það er von mín að niðurstaðan verði þessi - við sjálfstæðismenn eigum öfluga þingmenn sem hafa unnið vel fyrir okkur og komið mörgum hagsmunamálum okkar í gegn. Það á margt eftir að gera og ég treysti þessum mönnun fullkomlega til að koma því í framkvæmd á næstu árum.

Ég held að þegar fólk hlusti á frambjóðendur og skoði stefnur þeirra flokka, sem þeir eru í kjöri fyrir, muni það sjá að sjálfstæðisflokkinn er rétta valið í komandi kosningum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband