Leita í fréttum mbl.is

XXI. Landsþing sambands íslenskra sveitarfélaga

Föstudaginn 23.mars var haldið landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga í Reykjavík. Ég var fulltrúi Ísafjarðarbæjar á fundinum ásamt þeim Örnu Láru Jónsdóttur og Svanlaugu Guðnadóttur. 

Landsþingið var gott - mjög fróðleg erindi voru flutt þar um morguninn.  Aðalþema þingsins var tilfærsla verkefna frá ríki til sveitarfélaga. 

Starfsmaður Finnska innanríkisráðuneytinu flutti erindi á þingingu er fjallaði um byggðaþróun og byggðamál í Finnlandi.  Karl Björnsson, starfsmaður sambandsins, fjallaði um reynslu í tilfærslu verkefna frá ríki til sveitarfélaga.  Einnig var fjallað um samstarfsverkefni á Norðurlandi um starfsendurhæfingu.  Mér fannst það erindi svakalega fróðlegt, spennandi væri að hugsa um þetta verkefni hér á Vestfjörðum, árangur þess er mjög góður á Norðurlandi.  Einnig var fjallað um hvernig tilfærsla á verkefnum ætti að eiga sér stað.

Að loknum þessum erindum voru fyrirspurnir og umræður um þessi mál.  Að því loknu voru samþykktar eftirfarandi ályktanir.

Samþykkt var eftirfarandi ályktun um tilfærslu verkefna:

XXI. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkir

að heildstæðum flutningi verkefna á sviði velferðar-, félags og

menntamála frá ríki til sveitarfélaga verði hrundið af stað

tafarlaust. Undirbúningur flutnings á þjónustu við aldraða,

fatlaða og rekstur framhaldsskóla og heilsugæslu þolir enga

bið. Efling sveitarstjórnarstigsins og leiðrétting tekjustofna er

forsenda heildstæðrar og markvissrar nærþjónustu - brýnustu

mál byggða allt í kringum landið og jafnframt hornsteinn

farsællar borgarstefnu.

Einnig var samþykkt ályktun um tilfærslu framhaldsskólanna til sveitarfélagana, hún er eftirfarandi:

XXI. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga telur að

flutningur reksturs framhaldsskóla frá ríki til sveitarfélaga hafi

margvíslega kosti í för með sér og má í því sambandi

sérstaklega nefna sveigjanleg skil skólastiga. Landsþingið

hvetur menntamálaráðherra til þess að taka jákvætt í

hugmyndir sveitarfélaga um að taka yfir rekstur

framhaldsskóla í tilraunaskini og hefja sem fyrst undirbúning

þess verkefnis í samvinnu við sveitarfélögin.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband