Leita í fréttum mbl.is

Aðalfundur Höfrungs

Aðalfundur Höfrungs var haldinn í gær á Þingeyri í húsnæði björgunarfélagsins.

Þessi fundur var um margt sérstakur því þetta var aðalfundur fyrir árin 2004 - 2006 - það hefur s.s. ekki verið haldinn aðalfundur í þrjú ár.

Sigmundur Þórðarson lagði fram skýrslur stjórnar og reikninga fyrir þessi ár. 

Það hefur verið unnið mikið starf hjá Höfrungi á þessum tíma - miklar breytingar hafa átt sér stað á aðstöðu til íþróttaiðkunnar á þessum árum.  Gervigrasvöllur hefur risið, knattspyrnusvæðið var endurbætt og það hefur verið settur upp sandblaksvöllur á svæðinu.  Það er síðan verið að huga að því að setja upp klifurvegg í íþróttahúsinu á næstunni.  Höfrungur fékk styrk úr íþróttasjóði til að setja vegginn upp og einnig hafa þeir leitað til Ísafjarðarbæjar og HSV um styrk til að klára uppsetningu.

Þetta var góður fundur - ýmislegt sem upp á vantaði í framsetningu reikningana fyrir þessi ár en ekkert sem ekki má laga.

Sigmundur var endurkosinn formaður og fékk með sér í stjórn mjög öflugt fólk, eins og ávallt.  Ellert, skólastjóri, verður varaformaður og Eyrún Harpa, stjórnarmaður í UMFÍ, verður gjaldkeri félagsins. 

Höfrungur er félag sem á sér langa sögu og merka.  Öflug starfsemi er unnin á vegum þeirra á Þingeyri og nágrenni og margar góðar hugmyndir voru lagðar fram í gær sem koma til með að gera félagið að mjög sterkri einingu innan HSV í framtíðinni.

Ég vil þakka fráfarandi stjórn Höfrungs fyrir þeirra framlag til íþróttalífs í Ísafjarðarbæ og óska nýkjörinni stjórn alls hins besta í störfum framundan.

Takk fyrir góðan fund!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband