19.3.2007 | 22:10
Ég er fréttasjúklingur
Ég hef ekki verið duglegur að blogga síðustu daga. Ég og Rósa fórum til Róm með lögreglumönnum frá embættinu hér á Ísafirði og mökum þeirra.
Róm er yndisleg og það er virkilega gaman að koma þangað, ganga um og kynnast borginni. Við vorum í fimm daga og ég hef sjaldan gengið eins mikið og þessa daga. Skemmtileg ferð með skemmtilegu fólki sem við viljum þakka kærlega fyrir samveruna í ferðinni.
Þegar maður er á ferðalögum erlendis þá dettur maður algerlega úr hringiðjunni, sem mér finnst svo gott. Svo kemur maður heim, varla kominn inn fyrir dyrnar þegar maður sest niður og blaðar í gegnum öll dagblöðin, flettir sex daga aftur á öllum fréttamiðlum á netinu og les bloggið á visir og mbl - ég er fréttasjúkur!
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.