Leita í fréttum mbl.is

Opnun kosningarmiðstöðvar Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði

Á morgun, föstudaginn 30.mars, mun kosningarmiðstöð sjálfstæðisflokksins verða opnuð formlega á Ísafirði.  falki

Kosningarmiðstöðin er til húsa að Silfurgötu 5 (gamla Straumshúsinu) og mun fjörið hefjast kl. 18:00

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra, Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður og fleiri frambjóðendur verða á svæðinu.

Elfar Logi Hannesson mun flytja gamanmál og Helga Margrét Marzellíusardóttir mun syngja nokkur lög.

Það verða veitingar í boði stuðningsmanna.

Endilega mætið og kynnið ykkur stefnu Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi.


Skoðunarkönnun Stöðvar 2

Í kvöld var birt niðurstaða skoðanakönnunar stöðvar 2.  Var hún birt í sérstökum kosningarþætti sem stöð 2 var að byrja á í kvöld.  Ætlunin hjá þeim er að hafa svona þátt í öllum kjördæmum á miðvikudögum, eftir fréttir, fram að kosningum.

Þessi könnun kom álíka út eins og kannanir hafa verið að sýna undanfarið.

Sjálfstæðisflokkurinn: 28,4% - fékk 29,6% í kosningunum 2003
VG: 23% - fékk 10,6% í kosningunum 2003
Samfylkingin: 20,6% - fékk 23,2% í kosningunum 2003
Framsóknarflokkurinn: 14,3% - fékk 21,7% í kosningunum 2003
Frjálslyndir: 9,7% - fékk 14,2% í kosningunum 2003
Íslandshreyfingin: 2,9%

Það má ljóst vera að VG er að bæta við sig fylgi í þessu kjördæmi og það er forvitnilegt að sjá að Íslandshreyfingin mælist í þessari könnun þrátt fyrir að hafa ekki kynnt neinn framboðslista og hvað þá áherslur. 

VG er farin af stað í svipaða kosningarbaráttu og 2003 með því að leggja áherslur á annað en þau málefni sem þeir hyggjast vinna að eftir kosningar.  Barmmerki sem stela frösum úr auglýsingum sem hafa verið að fá miður vinsæla athygli víðsvegar um land.  Jæja, sumir læra aldrei neitt!!   

Sjálfstæðismenn eru með fylgi rétt við kjörfylgi og leiða má að því lýkur að 3 maðurinn (uppbótarþingmaður) fari til hans, miðað við þessar niðurstöður.  Frjálslyndir ná inn Guðjóni Arnari en alþýðubandalagsframsóknarfrjálslyndi frambjóðandinn nær ekki inn miðað við þessar tölur.  Samfylkingin er að dala eins og hefur komið fram áður í öðrum könnunum og virðast kjósendur vinstri flokkana hafa meiri trú á forystu VG heldur en forystu Samfylkingar. 

Ég sá ekki þáttinn á stöð 2 í kvöld um Norðvesturland.  Var að koma kosningarmiðstöðinni hér á Ísafirði í gagnið.  Það sem maður les af blogginu er að Jón Bjarnason hafi staðið sig illa, ekki getað svarað spurningum fréttamanna og hafi ekki haft neitt nýtt fram að færa.  Efsti maður Samfylkingar gerði víst engar gloríur, fór með rulluna sína.  Sturla svaraði víst vel fyrir sig og einnig Magnús.  Guðjón Arnar talaði um innflytjendamál og má víst vera að þeir freistast til að ná fylginu aftur upp fyrir léttvínsmörk með því að leggja ofuráherslu á það mál.

Þannig að fróðlegur þáttur fyrir þá sem sáu.

Það verður gaman að lesa bloggfærslur næstu daga um þennan þátt. 


Ferðasjóður íþróttafélagana stofnaður

Í morgun samþykkti ríkisstjórnin að setja á laggirnar ferðasjóð undir stjórn ÍSÍ og gera um það mál þriggja ára samning með 180 milljón króna framlagi.  Framlagið verður þannig að á árinu 2007 koma 30 milljónir, 60 milljónir árið 2008 og 90 milljónir árið 2009.

Þetta eru frábærar fréttir fyrir HSV.  Þetta hefur verið baráttumál okkar í nokkur ár og nú er það komið í höfn.

Stjórn ÍSÍ á eftir að semja reglur um greiðslur úr þessum sjóð og vona ég að hún taki ekki of langan tíma í verkið.  Reyndar var skipuð nefnd um málið á síðasta aðalfundi ÍSÍ sem í situr fulltrúi HSV.  Það hlýtur að vera þá verk þessarar nefndar að útbúa reglurnar.

Þetta eru vatnaskil í íslensku íþróttalífi að mínu mati.  Með þessu er verið að hjálpa, ekki bara íþróttafélögum á landinu við kostnað við ferðalög, heldur einnig fjölskyldum sem hafa mátt reiða fram mikla fjármuni í ferðalög barna sinna.

Til hamingju við öll með að þetta baráttumál okkar er í höfn.

 


Vestmannaeyjabær lýsir yfir stuðningi við Vestfirðinga

Takk kærlega fyrir stuðninginn!

 

Lesið frétt á ww.bb.is


Strandabyggð hafnar tillögum um Menningarráð Vestfjarða

Sveitarstjórn Strandabyggðar hafnaði í síðastliðinni viku framlögðum tillögum um menningarráð Vestfjarða.  Þeir höfnuðu þeirri grein tillagnana sem getur um fjölda fulltrúa í menningarráðinu. 

Fulltrúarnir eru í dag 9 og voru þessi fulltrúar kosnir á þingi Fjórðungssambandsins fyrir tæplega ári síðan án mótatkvæða.

Ég er í raun sammála sveitarstjórn Strandabyggðar enda lagði ég fram á sínum tíma fram tillögu í ráðinu að  fulltrúar í því yrðu 7 talsins.  Sú tillaga var rætt í ráðinu en það náðist ekki samkomulag um hana.  Samkomulag náðist um að halda fjöldanum óbreyttum fyrstu starfsár ráðsins og svo yrði það aðalfundur ráðsins sem myndi þá gera breytingar á menningarráðinu ef slíkt þyrfti.  Það er sú tillaga sem menningaráðið sendi áleiðis til allra bæjar - og sveitarstjórna á Vestfjörðum.

Það er reyndar óskiljanlegt að sveitarstjórn Strandabyggðar skyldi hafa hafnað þessum tillögum frá menningarráðinu.  Ef sveitarstjórnin hefði eitthvað við hann að athuga þá er það mín skoðun að þeir hefðu átt að fresta málinu og leita sér frekari upplýsinga um það sem var óskýrt í þeirra huga varðandi hann hjá sínum fulltrúa í ráðinu eða hjá formanni þess. 

Það er von mín að þetta hafi ekki áhrif á það ferli sem nú er í gangi - að ná samningum við Menntamála - og Samgöngumálaráðuneyti um aukin fjárframlög til menningarmála á Vestfjörðum.  Slíkt framlag myndi hafa mikla þýðingu fyrir menningarlífið í heild sinni á Vestfjörðum.

Ég hvet sveitarstjórn Strandabyggðar til að endurskoða ákvörðun sína, leita sér upplýsinga um tilurð hans hjá sínum fulltrúa og taka höndum saman með öðrum sveitarfélögum á Vestfjörðum í því að efla hér menningarlíf.

 


Viljayfirlýsing Sambands ísl. sveitarfélaga og Ríkisstjórnar Íslands

Fimmtudaginn 22.mars var skrifað undir viljayfirlýsingu Sambands íslenskra sveitarfélaga og Ríkisstjórnar Íslands.

Viljayfirlýsing

Ríkisstjórn Íslands og Samband íslenskra sveitarfélaga lýsa yfir eftirfarandi :

1. Aðilar munu vinna saman að mótun tillagna um fjármálareglur fyrir sveitarfélögin og bætta

upplýsingaöflun sem tryggt geti að fjármál sveitarfélaganna vinni með ríkisfjármálunum að því er

varðar almenna hagstjórn. Í þessu sambandi verði sérstaklega hugað að markmiðssetningu

varðandi þak á vöxt útgjalda sveitarfélaga, þak á hlutfall skulda þeirra og tekjuafkomu þeirra yfir

hagsveifluna.

2. Ríkisstjórnin lýsir sig reiðubúna, að því gefnu að afkoma ríkissjóðs leyfi, til þess að skoða

með jákvæðum hætti möguleika á að ríkið vinni með sveitarfélögum, sem tekin eru að framfylgja

fjármálareglum er þau hafa sett sér á grundvelli tillagna samkvæmt 1. tl. hér að framan, við að

lækka skuldastöðu þeirra. Samráð verður haft við Samband íslenskra sveitarfélaga um útfærslu

þessa.

3. Aðilar munu vinna markvisst að auknu samstarfi ríkis og sveitarfélaga á sviði kjaramála til

þess að koma megi í veg fyrir misræmi í kjarasamningsniðurstöðum, hvort heldur hjá ríkinu

annars vegar og sveitarfélögunum hins vegar eða innbyrðis hjá sveitarfélögunum.

4. Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir því að tímabundið aukaframlag í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga á

árunum 2007 og 2008 til að jafna aðstöðumun sveitarfélaga hækki úr 700 milljónum króna í 1400

milljónir króna hvort ár. Aðilar munu í sameiningu meta þörf fyrir aukaframlög í jöfnunarsjóð að

þessu tímabili loknu.

5. Aðilar munu sameiginlega leggja mat á framkvæmd samkomulags um framlög úr

Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til sameiningar sveitarfélaga.

Halldór Halldórsson kynnti þessa yfirlýsingu fyrir þingfulltrúm á landsþingi sambandsins daginn eftir undirskriftina.  Þar sagði hann að um almenna yfirfærslu á fjármunum væri verið að ræða frá ríki til sveitarfélaga í tengslum við fjármálareglna og svo hlutdeild í fjármagnstekjuskattinum.

Helmingshækkun á framlagi í jöfnunarsjóð sveitarfélaga hefur mikla þýðingu fyrir okkar sveitarfélag.  Í dag erum við að fá rúmar 200 milljónir úr jöfnunarsjóðnum.  Þegar tekið verður til að dreifa fjármununum til sveitarfélagana þá er það von mín að horft verði til þeirra sveitarfélaga sem eru hvað dreifðust, eins og Ísafjarðarbær og Fjarðabyggð.  Einnig verður að horfa til sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og svo verður einnig að horfa til Vestmannaeyja. 

Svo verður fróðlegt að sjá hvernig þessar fjármálareglur verða útfærðar og hvað það muni skila sveitarfélögum.  Tekjur sveitarfélaga af fjármagnstekjuskattinum eru engar í dag þannig að allt sem kemur þaðan frá ríkinu er til góðs.

 


XXI. Landsþing sambands íslenskra sveitarfélaga

Föstudaginn 23.mars var haldið landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga í Reykjavík. Ég var fulltrúi Ísafjarðarbæjar á fundinum ásamt þeim Örnu Láru Jónsdóttur og Svanlaugu Guðnadóttur. 

Landsþingið var gott - mjög fróðleg erindi voru flutt þar um morguninn.  Aðalþema þingsins var tilfærsla verkefna frá ríki til sveitarfélaga. 

Starfsmaður Finnska innanríkisráðuneytinu flutti erindi á þingingu er fjallaði um byggðaþróun og byggðamál í Finnlandi.  Karl Björnsson, starfsmaður sambandsins, fjallaði um reynslu í tilfærslu verkefna frá ríki til sveitarfélaga.  Einnig var fjallað um samstarfsverkefni á Norðurlandi um starfsendurhæfingu.  Mér fannst það erindi svakalega fróðlegt, spennandi væri að hugsa um þetta verkefni hér á Vestfjörðum, árangur þess er mjög góður á Norðurlandi.  Einnig var fjallað um hvernig tilfærsla á verkefnum ætti að eiga sér stað.

Að loknum þessum erindum voru fyrirspurnir og umræður um þessi mál.  Að því loknu voru samþykktar eftirfarandi ályktanir.

Samþykkt var eftirfarandi ályktun um tilfærslu verkefna:

XXI. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkir

að heildstæðum flutningi verkefna á sviði velferðar-, félags og

menntamála frá ríki til sveitarfélaga verði hrundið af stað

tafarlaust. Undirbúningur flutnings á þjónustu við aldraða,

fatlaða og rekstur framhaldsskóla og heilsugæslu þolir enga

bið. Efling sveitarstjórnarstigsins og leiðrétting tekjustofna er

forsenda heildstæðrar og markvissrar nærþjónustu - brýnustu

mál byggða allt í kringum landið og jafnframt hornsteinn

farsællar borgarstefnu.

Einnig var samþykkt ályktun um tilfærslu framhaldsskólanna til sveitarfélagana, hún er eftirfarandi:

XXI. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga telur að

flutningur reksturs framhaldsskóla frá ríki til sveitarfélaga hafi

margvíslega kosti í för með sér og má í því sambandi

sérstaklega nefna sveigjanleg skil skólastiga. Landsþingið

hvetur menntamálaráðherra til þess að taka jákvætt í

hugmyndir sveitarfélaga um að taka yfir rekstur

framhaldsskóla í tilraunaskini og hefja sem fyrst undirbúning

þess verkefnis í samvinnu við sveitarfélögin.

 


HSV tryggir alla iðkendur

Í morgunblaðinu í dag er frétt á bls. 2 um hana Örnu okkar.

Fréttir er eftirfarandi:

ARNA Sigríður Albertsdóttir, sem slasaðist alvarlega á skíðum í Noregi fyrir síðustu áramót, fékk í gær bætur frá tryggingafélaginu Íslandstryggingu.
ARNA Sigríður Albertsdóttir, sem slasaðist alvarlega á skíðum í Noregi fyrir síðustu áramót, fékk í gær bætur frá tryggingafélaginu Íslandstryggingu. Íþróttafélag Örnu Sigríðar, Skíðafélag Ísfirðinga, er eitt fárra íþróttafélaga sem tryggja félagsmenn sína hér á landi, að sögn Inga Þórs Ágústsonar, formanns Héraðssambands Vestfirðinga. Þeir og Íþróttabandalag Hafnarfjarðar séu einu héraðssamböndin sem tryggja öll sín íþróttafélög.

Aðspurð sagðist Arna Sigríður vera ánægð með að fá bæturnar og þá ákvörðun Héraðssambandsins að tryggja alla félagsmenn íþróttafélaganna. "Endurhæfingin gengur ágætlega, ekkert miklar framfarir en gengur ágætlega," sagði Arna Sigríður sem sagðist hafa haldið að allir íþróttamenn væru sjálfkrafa tryggðir.

Það var árið 2004 sem stjórn HSV tók þá ákvörðun, eftir samráð við formenn aðildarfélaga þess, um að tryggja alla iðkendur HSV.  Það er von mín að þessi ákvörðun okkar muni koma Örnu og hennar fjölskyldunni vel í framtíðinni. 

Fylgist endilega með heimasíðunni hennar Örnu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband