21.2.2007 | 14:40
Er þorskeldi framtíðin?
Það er stórkostlegt að sjá hvernig Dr. Þorleifi og vísindamönnum hjá Matís hefur tekist að koma þorskeldisrannsóknum á kortið hér á Vestfjörðum. Sú vinna sem felst í þessum rannsóknum er gríðarleg og mikill kostnaður fylgir þessu sem hefur að miklu leyti fallið á fyrirtæki í sjávarútvegi.
Það er von manna að kostnaðurinn komi til baka á nokkrum árum og þá hafi menn náð miklum tökum á þorskeldinu.
Sú öra þróun sem hefur átt sér stað í þessu eldi eru stórkostlegar. Allt frá því ég tók fyrst að fylgjast með þessu hefur bæði tækninni og rannsóknum fleytt fram. Kvíarnar eru orðnar betri og minni en þær voru í fyrstu. Fyrst voru bara kvíar í Álftafirði en nú eru þær hér í Skutulsfirði, Álftafirði og Seyðisfirði og þeim fjölgar ört í þessum fjörðum.
Það verður fróðlegt að vita hvort að þessi rannsókn heppnast þannig að þorskeldi getið tekið næsta skref - vonandi tekst þetta allt saman og eldið geti tekið þeim framförum sem þarf til að gera það arðbært fyrir samfélagið í heild sinni.
Þorskar sendir í þungunarpróf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.4.): 2
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 1001
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.